Samhliða félagsúthlutun í desember fór fram söfnun fyrir Verndarsjóð villtra laxastofna (NASF) til að styðja við baráttuna um verndun villta laxastofnsins. Félagsmenn tóku höndum saman og söfnuðu 300.000 krónum.
Þeir Elvar Örn Friðriksson og Elías Pétur Þórarinsson frá NASF tóku við styrknum frá Ragnheiðar Thorsteinsson, formanni SVFR við Elliðaárnar.
Frá vinstri: Ragnheiður Thorsteinsson formaður SVFR, Elvar Örn og Elías Pétur frá NASF.
Verndarsjóður Villtra Laxastofna (NASF) hefur verið leiðandi í laxavernd í meira en 30 ár. Samtökin voru stofnuð í Reykjavík af Orra Vigfússyni, frumkvöðli í laxavernd. Markmið NASF er að takast á við allar þær ógnir sem stafa að villta laxinum og að stuðla að því að laxastofnar nái sér aftur á strik. Þeir sem vilja kynna sér betur starfsemi NASF er bent á heimasíðu félagsins, nasf.is.