Sumarblað Veiðimannsins

Veiðimaðurinn, málgagn Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er nú kominn úr prentun og farinn í dreifingu til félagsmanna.

Blaðið er fjölbreytt að vanda. Greint er frá skýrslu stjórnar SVFR þar sem farið er skilmerkilega yfir veiðisvæði á vegum félagsins, sem og fjárhagsstöðuna en fjórða árið í röð er eiginfjárstaða félagsins að styrkjast.

Rætt er við Ragnar Snorra Pétursson, formann árnefndar Korpu, um ána. Í staðinn fyrir að selja heila daga í senn er nú seldir hálfir dagar. Því til viðbótar er seld ein stöng á efsta svæði árinnar, fyrir ofan svokallaða Stokka en það svæði hefur lítið verið stundað af veiðimönnum.

Veiðimaðurinn Ragnar Ingi Danner er í viðtali en hann er flinkur fluguhnýtari og mikill áhugamaður um lífríkið og fæðu fiskanna. Hinn ungi Húsvíkingur Guðmundur Eiðsson er einnig í viðtali en hann fékk sinn fyrsta lax á flugu þegar hann var átta ára.

Veiðikonan Rúna Magnúsdóttir er að þessu sinni gestur í liðnum Tíu af Tíu, sem er orðinn fastur liður í Veiðimanninum.

Það getur borgað sig að skipuleggja veiðiferð í Elliðaárnar vel fyrirfram til að fá sem mest út úr tímanum við árbakkann. Stefán Segatta, sem situr í árnefnd Elliðaánna, gefur lesendum góð ráð í þessum efnum.  Í Veiðimanninum er einnig fjallað um yfirfærslu Elliðaánna frá Orkuveitu Reykjavíkur til Reykjavíkurborgar.

Sókn sjóbirtingsins hefur varla farið framhjá veiðimönnum, enda fjölgar sífellt fréttum af stórum sjóbirtingum í helstu silungsveiðiám landsins. Fjallað er um þetta í blaðinu.

Þá er lesendum bent á fimm laxaflugur og fimm silungaflugur sem vert er að gefa gaum og prófa í sumar.

Fátt er mikilvægara í vel heppnaðri veiðiferð en góður félagsskapur og góður matur. Í Veiðimanninum eru uppskriftir fyrir þá sem eiga bókað í veiði þar sem sjálfsmennska er. Hægeldað Osso buco með gremolada og kartöflustöppu, bruschetta með nautastrimlum og epla-mylsnubaka eru á matseðlinum.

Verði ykkur að góðu og gleðilegt veiðisumar!

By SVFR ritstjórn Fréttir