Vaskur hópur áhugafólks um fluguhnýtingar hefur nú ákveðið að stofna félag um áhugamálið.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur fagnar þessum viðburði, það er alltaf gaman að sjá vöxt í þessu góða sporti okkar.
Fluguhnýtingarfélag Vesturlands er félag áhugafólks um fluguhnýtingar, því er ætlað að efla og auka áhuga á fluguhnýtingum á Vesturlandi. Félagið er öllum opið sem vilja taka þátt.
Fluguhnýtingarfélag Vesturlands kemur til með að standa fyrir fluguhnýtingarkvöldum á Akranesi, í Borgarnesi og víðar ef óskað er. Einnig stendur til að bjóða upp á ýmiskonar fræðslu og kennslu í fluguhnýtingum.
Búið er að tryggja félagsmönnum afslátt hjá helstu veiðiverslunum á suðvestur horninu auk þess að fá afslátt af Veiðikortinu.
Fluguhnýtingar henta fólki af öllum kynjum og breiðum aldurshópi. Fjölskyldur geta sameinast við fluguhnýtingar og það þarf ekki krafta eða dýrar græjur til að hnýta flugur, hægt er að komast langt með byrjenda setti og góðu ljósi. Fluguhnýtingar efla einbeitingu, samræma hug og hönd og eru ein af betri núvitundaræfingum sem finnast. Svo er mun skemmtilegra að veiða fisk á flugu sem hnýtt er af viðkomandi veiðifólki.
Við hlökkum til að sjá sem flesta!
Undirbúningsnefndin.