Stafrænt félagaskírteini sent á alla félagsmenn

Stafrænt félagsskírteini SVFR 2026

Síðastliðinn sunnudag var stafrænt félagsskírteini fyrir árið 2026 sent á alla félagsmanna SVFR sem hafa greitt félagsgjaldið í ár, og eru með gilt netfang skráð á Mínum síðum á svfr.is.

Pósturinn var sendur frá netfanginu smartsolutions.is, í nafni SVFR.

Hægt er að vista félagsskírteinið í Apple Wallet ef þú ert með iPhone og í Google Wallet ef þú notar Android-snjallsíma.

Vegna öryggisstillinga í tölvupósti er möguleiki að skilaboðin hafi lent í ruslpóstmöppu (e. Junk). Við biðjum félagsmenn því vinsamlegast um að athuga ruslpóstinn ef pósturinn finnst ekki í innhólfinu.

Fyrir utan að vera aðgengilegt og snyrtilegt í símanum veitir félagsskírteinið einnig afslætti hjá samstarfsaðilum SVFR. Yfirlit yfir samstarfsaðila og afsláttarkjör félagsmanna má finna á svfr.is/afslattur

Við erum sífellt að bæta við okkur samstarfsaðilum. Ef þú veist um fyrirtæki sem hafa áhuga á að bætast í hópinn, mátt þú gjarnan senda okkur ábendingar á svfr@svfr.is.

Kær kveðja,
starfsfólk SVFR