Kvennanefnd SVFR: Laxá í Laxárdal 22.–25. júní 2026 – Skráning í gangi

Kvennanefnd SVFR er að fara í sína árlegu veiðiferð í Laxá í Laxárdal, einu þekktasta urriðasvæði landsins. Í Laxá í Laxárdal fá veiðikonur tækifæri til að glíma við stóra og kraftmikla urriða, en einnig er bleikjan væn á svæðinu. Ferðin sameinar frábæran félagsskap og skemmtilega veiði með leiðsögn í fallegu umhverfi. Laxárdalurinn er rómaður fyrir stórbrotna náttúru, fegurð og kyrrð.

Þessi ferð hentar bæði þeim sem eru vanar veiðikonur og þeim sem vilja bæta við reynslu og njóta veiðinnar í góðum hópi.

Veiðipakki:

  • Innifalið er gisting í tveggja manna herbergi með sér baðherbergi
  • Veiðileyfi á ½ stöng í þrjá daga (1/2-1-1-1/2)
  • Fullt fæði
  • Veiðileiðsögn, tvær stangir deila einum leiðsögumanni

Verð er 204.375 kr. fyrir félagskonur SVFR.

Þær sem eru utan félagsins en langar að skrá sig geta keypt aðild hér. Ef maki er nú þegar skráður í félagið býðst þér að kaupa maka aðild á sérkjörum.