Heiðurskaffi heldri félaga – miðvikudaginn 15. apríl

Það er okkur sönn ánægja að bjóða öllum heldri félögum, fæddum árið 1959 og fyrr, til heiðurskaffi miðvikudaginn 15. apríl n.k.

Herlegheitin fara fram milli klukkan 14:00 og 16:00 á skrifstofu SVFR að Suðurlandsbraut 54 – 2. hæð (bláu húsin).

Boðið verður upp á vöfflur og kaffi og þá mun formaðurinn, Ragnheiður Thorsteinsson, heilsa upp á gesti og gangandi. Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta mann og annan, spjalla um heima og geima og eiga notalega stund saman.

Sjáir þú þér fært að mæta máttu vinsamlegast staðfesta komu þína HÉR.

Með góðri kveðju,
Stangaveiðifélag Reykjavíkur

By Eva María Grétarsdóttir Fréttir