Fullsetinn salur á Nördaveislu SVFR

Kúltúrhornið: Þorsteinn Eyfjörð, Vignir Barkarson og Tryggvi Guðmundsson deildu reynslu og svöruðu spurningum úr sal. (Ljósmynd: Jakob Sindri Þórsson)

Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 fór Nördaveisla SVFR aftur af stað með kraftmiklu silungsveiðikvöldi undir yfirskriftinni Hálendisveiði á Brasa Restaurant í Turninum. Salurinn var fullsetinn og kvöldið einkenndist af góðri skemmtun, spurningum úr sal og virkum umræðum.
Kvöldið hófst á Skólabekknum, þar sem Tryggvi Guðmundsson hélt fræðsluerindið Hálendi Íslands og leiddi gesti í gegnum það sem skiptir mestu máli þegar veitt er langt frá alfaraleið. Þar var farið yfir aðgengi og skipulag ferða, mikilvægi undirbúnings, búnað og praktík fyrir göngur og ferðalög, auk þess sem Tryggvi fjallaði um helstu veiðiaðferðir og nálgun við að lesa aðstæður á heiðarvötnum og í afskekktum ám.

Í Kúltúrhorninu tóku Þorsteinn Eyfjörð, Vignir Barkarson og Tryggvi Guðmundsson Barkarson þátt í opnu samtali þar sem reynsla, lærdómur og ólíkar leiðir í hálendisveiði voru ræddar. Umræðurnar voru fjölbreyttar og gestir nýttu tækifærið til að spyrja spurninga og kafa dýpra í það sem raunverulega skiptir máli þegar aðstæður eru krefjandi og fjarlægðin frá þjónustu og alfaraleið meiri.

Að venju var Makkerinn á sínum stað og reyndi á þekkingu gesta í léttum og skemmtilegum anda með góðri blöndu af fróðleik og félagsskap sem hefur orðið einkennismerki Nördaveislunnar. Happdrættið var á sínum stað og setti léttan og skemmtilegan punkt við kvöldið. Heppnir gestir fóru heim með glæsilega vinninga. SVFR vill sérstaklega þakka samstarfsaðilum Nördaveislunnar fyrir öflugan stuðning og framlag til viðburðarins.

Næsta Nördaveisla SVFR verður 26. mars, með áherslu á laxveiði. Frekari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.

 

By Ingvi Örn Ingvason Félagsstarf Fréttir