Fimmtudaginn 16. apríl kl. 20:00 efnir Stangaveiðifélag Reykjavíkur til opins fundar um málefni Elliðaánna og býður öllum framboðum sem taka þátt í komandi borgarstjórnarkosningum að koma og gera grein fyrir afstöðu sinni.
Elliðaárnar eru einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborginni. Þær eru dýrmætt útivistarsvæði, mikilvægt búsvæði fisks og annars lífríkis og hluti af náttúruarfi Reykjavíkur. Á sama tíma eru þær viðkvæmt vistkerfi sem þarf skýra vernd og ábyrga stefnu.
Á fundinum verður rætt um framtíð ánna, framkvæmdir á áhrifasvæði þeirra, aukna umferð um dalinn, brúarsmíði, skipulag og hvernig borgin hyggst tryggja raunverulega vernd Elliðaánna til framtíðar.
Á aðalfundi SVFR 26. febrúar síðastliðinn var samþykkt ályktun um vernd Elliðaánna. Með þessum fundi viljum við skapa vettvang fyrir opna, málefnalega og skýra umræðu við þá sem sækjast eftir umboði borgarbúa.
Fundurinn verður haldinn á kaffihúsinu Elliða við Rafstöðvarveg 10-12, í hjarta Elliðaárdal, og er opinn öllum. Sjá leiðarvísir hér
Við hvetjum alla sem láta sig framtíð Elliðaánna varða til að mæta.