Frábær stemning á Nördaveislu SVFR

Fimmtudaginn 26. mars var glæsileg mæting á Nördaveislu SVFR á Brasa Restaurant í Turninum, þar sem kvöldið var helgað laxveiði undir yfirskriftinni Öfgar á örlagastundu. Dagskráin snerist að þessu sinni að þeim aðstæðum sem reyna hvað mest á veiðimennskuna, þegar vatn er ýmist of mikið eða of lítið og veiðimenn þurfa að lesa aðstæður vel, bregðast við og laga sig að breyttum skilyrðum.

Kvöldið hófst á kynningu á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal, þar sem Ármann Kristjánsson fór yfir svæðið, sérstöðu þess og veiðimöguleika af mikilli þekkingu og metnaði. Samhliða því var kynnt ný vefsíða fyrir svæðið, www.biglaxa.is, sem nú er komin í loftið. Þar er um að ræða athyglisverða nýjung í framsetningu veiðiupplýsinga, enda hefur Ármann lagt ríka áherslu á að nýta tæknina til fulls og setja fram afar ítarlegar, skýrar og nytsamlegar lýsingar á veiðistöðum. Með því er veiðimönnum veitt betri yfirsýn yfir svæðið og aðgengi að upplýsingum er með besta móti.

Ármann kynnir Miðsvæðið fyrir gestum.

Jón Þór Ólason sá um Skólabekk kvöldsins og fjallaði um veiði í litlu og miklu vatni á einstaklega skemmtilegan, beittan og eftirminnilegan hátt. Erindið var ekki aðeins fróðlegt heldur frábær skemmtun, enda fór Jón Þór á kostum eins og honum einum er lagið. Hann flutti erindið af mikilli reynslu, innsæi og beittum húmor og hélt salnum föngnum frá upphafi til enda, þar sem hláturinn ómaði hvað eftir annað.

Jón Þór Ólason fór á kostum í Skólabekk kvöldsins og hélt gestum föngnum með fróðlegu og afar skemmtilegu erindi.

Að vanda var spurningakeppni Makkersins á sínum stað og síðar um kvöldið tók Kúltúrhornið við. Þar stýrði Hafsteinn Már Sigurðsson, eða Haffi eins og flestir veiðimenn þekkja hann, umræðum með þeim Ármanni og Jóni Þór þar sem farið var yfir ýmis álitamál laxveiðinnar, reynslu af laxveiði og þær aðstæður sem mest reyna á dómgreind, innsæi og úthald veiðimanna. Sú umræða var bæði lífleg, fróðleg og skemmtileg og vakti verðskuldaða athygli meðal gesta.

Í Kúltúrhorninu fóru Haffi, Jón Þór og Ármann yfir ýmis álitamál laxveiðinnar í líflegri og skemmtilegri umræðu.
Kvöldinu lauk með veglegu happdrætti þar sem fjölmargir gestir hlutu glæsilega vinninga. SVFR vill færa samstarfsaðilum Nördaveislunnar sérstakar þakkir fyrir öflugan stuðning og mikilvægt framlag til viðburðarins.

Næsti viðburður verður á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, þegar efnt verður til sumarhátíðar veiðimanna. Um er að ræða samstarfsverkefni SVFR, Veiðikortsins, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Veiðifélags Elliðavatns, þar sem börn og fjölskyldur þeirra koma saman og fagna sumrinu.

By Ingvi Örn Ingvason Félagsstarf