Ályktun aðalfundar SVFR um vernd Elliðaánna 26. febrúar 2026

Ályktun aðalfundar SVFR um vernd Elliðaánna 26. febrúar 2026 

Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) áréttar afdráttarlausa afstöðu félagsins um að vernd Elliðaánna, fiskistofna og annars lífríkis í vatnakerfi þeirra, sé forgangsmál. Fundurinn lýsir yfir þungum áhyggjum af því, að sífellt sé sótt harðar að ánum úr mörgum áttum og telur að stofnanir Reykjavíkurborgar hafi ítrekað sýnt gáleysi í málefnum ánna.

Elliðaárnar eru meðal bestu lax- og silungsveiðiáa landsins og jafnframt einstakt náttúrufyrirbæri í miðri höfuðborg. Lífríki þeirra er frjósamt en viðkvæmt fyrir álagi. SVFR var stofnað til að vernda árnar og sú ábyrgð stendur óhögguð, þótt tæp 90 ár séu frá stofnun félagsins.

Umfangsmiklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í nágrenni ánna, þar á meðal uppbygging þúsunda íbúða á Ártúnshöfða og framkvæmdir tengdar Borgarlínu. Sérstakar áhyggjur vekur fyrirhugað jarðrask á Geirsnefi þar sem verulegt magn spilliefna er í jarðvegi, enda er svæðið að stórum hluta uppfylling úr tilfallandi úrgangi, bílhræjum og öðru rusli.

Fundurinn áréttar mikilvægi þess, að á engan hátt sé gengið gegn sjálfbærni lífríkisins í boðuðum framkvæmdum og öðrum sem síðar gætu orðið. Það á einnig við um skipulag og mögulegar framtíðarframkvæmdir á áhrifasvæði efsta hluta vatnakerfis Elliðaánna, þ.m.t. árnar sem renna í Elliðavatn og vatnið sjálft. Slíkar framkvæmdir geta haft ófyrirséðar og alvarlegar afleiðingar fyrir vatnasvið Elliðaánna.

Jafnframt lýsir aðalfundur yfir áhyggjum af þeirri markvissu stefnu Reykjavíkurborgar að auka umferð um Elliðaárdal með umfangsmiklum fjárfestingum í innviðum, leiksvæðum, göngu-, hjóla- og hlaupabrautum. Nú liggur jafnframt fyrir yfirlýst markmið borgarinnar um að gera dalinn að sérstökum áfangastað ferðamanna. Fundurinn varar við að slík þróun, án fullnægjandi varúðar og stýringar, geti ógnað viðkvæmu jafnvægi ánna.

Fundurinn gagnrýnir einnig að brúm yfir Elliðaár fjölgi stöðugt án þess að nægilegt tillit sé tekið til lífríkis og fiskgöngu við hönnun mannvirkja. Nú þegar liggja 14 brýr yfir veiðisvæði Elliðaánna, frá ósi að stíflu við Elliðavatn, og að minnsta kosti tvær til viðbótar eru í burðarliðnum yfir góð en viðkvæm veiði- og hvíldarsvæði fisks í ánni. SVFR telur nóg komið af slíkum framkvæmdum og hvetur Reykjavíkurborg til að falla frá áætlunum um frekari brúarsmíði. Jafnframt er mikilvægt að endurhanna í sumum tilvikum lýsingu á nýlegum brúm, sem varpar mikilli birtu ofan í viðkvæm ársvæði.

Aðalfundur telur ósamræmi felast í því að Reykjavíkurborg tali um ágæti og fágæti Elliðaánna á tyllidögum en sýni fiskistofnum og vernd ánna ekki nægilega athygli í daglegri ákvarðanatöku.

Aðalfundur SVFR hvetur Reykjavíkurborg og aðra ábyrgðaraðila til að stíga varlega til jarðar í málefnum Elliðaánna. Þær eru ekki aðeins útivistarsvæði heldur lifandi og viðkvæmt vistkerfi sem hefur þjóðlegt og alþjóðlegt gildi. Tryggja verður að komandi kynslóðir geti notið ánna með þeim gæðum sem þær búa yfir í dag og fiskistofnar fái dafnað um ókomna tíð.

Að lokum skorar aðalfundur SVFR á alla stjórnmálaflokka sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum að taka saman höndum um raunverulega vernd Elliðaánna og tryggja að orðum um gildi þeirra fylgi skýrar efndir í stefnu og framkvæmd.

Reykjavík, 26. febrúar 2026.