Aðalfundur SVFR verður haldinn 26. febrúar

Undirbúningur er hafinn fyrir aðalfund SVFR, sem haldinn verður fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 18:00 í Akoges salnum, Lágmúla 4, Reykjavík. Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf, þ.m.t. kosning formanns til eins árs og þriggja stjórnarmanna til tveggja ára. Sitjandi formaður og stjórnarmenn gefa kost á sér til endurkjörs. Að auki verða kjörnir fimm aðilar í fulltrúaráð til tveggja ára.

Tilkynningar um framboð til allra ofangreindra embætta skulu berast skrifstofu SVFR fyrir 12. febrúar n.k., með skriflegum hætti eins og tilgreint er í lögum félagsins.

Stjórn SVFR
Stjórn SVFR: Efri röð frá vinstri: Halldór Jörgensson, Dögg Hjaltalín og Brynja Gunnarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Trausti Hafliðason, Hrannar Pétursson, Ragnheiður Thorsteinsson formaður og Helga Guðmunds Jónsdóttir.

 

Methagnaður við krefjandi aðstæður

Starf félagsins gekk afar vel á árinu 2025 og methagnaður varð af rekstrinum. Heildartekjur námu 669 milljónum króna og hagnaður var 66,2 milljónir króna. Þetta er fimmta árið í röð sem eiginfjárstaða félagsins styrktist, en fyrir þann tíma var hún veik um langt skeið. Ársreikningur SVFR er til sýnis félagsmönnum á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 54.

Ýmsir samverkandi þættir skýra bætta afkomu SVFR, meiri sala veiðleyfa en áætlað var, jákvæð afkoma allra ársvæða, almennur agi í rekstri félagsins, bættir innheimtu- og skráningarferlar, öflugt starfsfólk og fjölgun félagsmanna. Fjármagnstekjur voru óvenju miklar og hagnaður var af rekstri Veiðikortsins. Þá hefur stjórn lagt ríka áherslu á að tekjur af hverju veiðisvæði standi undir kostnaði, í stað þess að afgangur af einu svæði sé nýttur til að greiða niður tap af öðru.

Rekstur veiðihúsa gekk einnig vel, en félagið rak í eigin nafni veiðihúsin í Mývatnssveit og Laxárdal, en útvistaði rekstri veiðihúsanna við Langá og Haukadalsá og gekk það samstarf vonum framar.

SVFR er óhagnaðardrifið félag og því er arður ekki greiddur út. Hins vegar er afar mikilvægt að eiginfjárstaðan sé sterk, enda eru fjárskuldbindingar vel á annan milljarð króna, ef litið er til allra leigusamninga félagsins. Sagan sýnir enda, að margvísleg áföll geta dunið á félaginu og hratt gengið á eignir þess.

Með kveðju,
Stjórn SVFR
By Ingimundur Bergsson Fréttir