Kæru félagsmenn,
Rafrænir greiðsluseðlar vegna félagsgjalda SVFR fyrir árið 2027 hafa nú verið sendir út og ættu að hafa borist í tölvupósti. Í framhaldinu verður greiðslukrafa stofnuð í heimabanka.
Ef þú hefur ekki fengið greiðsluseðil í tölvupósti gæti verið að netfangið sem við höfum skráð hjá þér sé ekki rétt. Við biðjum þig þá að senda okkur rétt netfang á svfr@svfr.is svo við getum uppfært upplýsingarnar í kerfum okkar.
Með veiðikveðju,
Skrifstofa SVFR