Haustfagnaður SVFR fór fram í Þróttar heimilinu þar sem félagsmenn og gestir komu saman til að fagna góðu veiðisumri og eiga skemmtilega kvöldstund í góðum félagsskap.
Nefndum SVFR var boðið í hamborgaraveislu klukkan 18 áður en almenn dagskrá hófst klukkan 20. Ragnheiður Thorsteinsson, formaður SVFR, bauð gesti hjartanlega velkomna áður en Jógvan Hansen tók við veislustjórn og hélt uppi fjörinu.
Eftir að hafa hitað mannskapinn vel upp kynnti Jógvan leynigest kvöldsins, sem reyndist vera enginn annar en Friðrik Ómar. Þeir félagar kitluðu hláturtaugar gesta og glöddu með frábærum söngatriðum.
Veitt voru verðlaun fyrir stærstu laxa sumarsins áður en gestir öttu kappi í veiði-pubquiz þar sem spennan var í hámarki alveg fram að seinustu spurningu.
Verðlaunahafar kvöldsins voru:
| Ársvæði | Veiðistaður | Stærð | Veiðimaður |
|---|---|---|---|
| Elliðaár | Nr. 39 - Hundasteinar | 85 cm | Kristín Björg Árnadóttir |
| Korpa | Nr. 9 - Túnhylur | 85 cm | Ragnar Snorri Pétursson |
| Haukadalsá | Nr. 33 - Kvörnin | 88 cm | Ármann Andri Einarsson |
| Sandá í Þistilfirði | Reynir | 92 cm | Björg Ólafsdóttir |
| Langá á Mýrum | Nr. 28 - Stórhólakvörn | 92 cm | Sigþór Gunnarsson |
| Laugardalsá | Nr. 13 - Blámýrarfljót | 93 cm | Bjarki Þór Hilmarsson |
| Sandá í Þjórsárdal | Ósinn | 101 cm | Nils Folmer |
| Miðá í Dölum | Nr. 26 - Stekkjarfoss | 102 cm | Þorsteinn Magnússon |
Spennan í hámarki í pub quiz
Veglegir vinningar voru í boði frá SVFR, Veiðikortinu, Reiðu Öndinni, Sölku, Kjötbúðinni og Silla kokk.Þökkum við þessum aðilum kærlega fyrir að taka þátt í gleðinni með okkur.
Það var frábær mæting í Laugardalinn og ánægjulegt var að sjá svona marga félagsmenn á öllum aldri koma saman og fagna frábæru veiðisumri.
SVFR þakkar öllum sem mættu fyrir frábæra stemningu og við hlökkum til að hittast aftur á næsta viðburði.