Draumabyrjun á fluguveiðiferlinum í Miðá

Það þarf ekki alltaf risa lax eða metveiði til að eiga vel heppnaða veiðiferð. Skemmtilegar samverustundir í fallegu umhverfi, þar sem veiðistöngin er aldrei langt undan, skapa minningar sem fylgja okkur lengi.

Um miðjan ágúst héldu bræðurnir Ástþór Ernir og Bjarni Rúnar í Miðána í góðra vina hópi. Fyrir Bjarna var þetta fyrsta fluguveiðiferðin og það er óhætt að segja að hann hafi stimplað sig inn af krafti. Fljótlega setti hann í bleikju en stóra stundin kom þegar Bjarni landaði sínum fyrsta flugulaxi í Hundadalsármótum – fallegum 68 cm hæng.

Að sögn Ástþórs var þetta mikil sjónveiði og gaman að veiða í svona tærri á. Hollið endaði með þrjá laxa og um þrjátíu bleikjur.

Rýnt í tölfræðina

Bleikjuveiðin hefur staðið fyrir sínu í Miðá í sumar. Alls eru 126 bleikjur komnar í bók en í fyrra endaði veiðin í 198 bleikjum og því gæti heildartalan hæglega farið yfir 200 áður en skellt verður í lás í lok september.

Þá hefur laxveiðin sótt í sig veðrið. Vikan 17.–24. ágúst var sú fengsælasta hingað til þegar 24 laxar komu á land. Skráðir laxar eru nú 86 – tveimur fleiri en veiddust allt síðasta tímabil.

Næstu vikur geta því orðið spennandi. Miðá er jú þekkt fyrir að vera sterkust síðsumars og nú þegar stóru laxarnir eru farnir á stjá má búast við að fjör færist í leikinn.

Eitt laust holl!

Ef þig hefur lengi langað til að veiða í Miðá en aldrei látið verða af því, þá er þetta tækifærið. Við lumum nefnilega á einu lausu holli dagana 9.–11. september. Já, nú fer hver að verða síðastur að fylla á veiðitankinn áður en tímabilinu lýkur!

🎣 3 stangir – seldar saman
🐟 Kvóti: 2 laxar á stöng á vakt > 70 cm
🪶 Eingöngu veitt á flugu
🏡 Veiðihús með heitum potti og svefnplássi fyrir sex
🚗 Um 2 klst. akstur frá Reykjavík
💰 Þrifagjald: 44.000 kr. – greiðist aukalega