Góð veiði hefur verið í Gljúfurá undanfarið og þegar þetta er ritað hafa 128 laxar komið á land. Þar með er veiðin komin yfir lokatölur síðasta árs, þegar 117 laxar veiddust.
Enn er tæpur mánuður eftir af tímabilinu, sem lýkur 26. september, og það verður spennandi að fylgast með lokasprettinum!
Við eigum eitt laust holl dagana 2.–4. september.
🎣 3 stangir
🏡 Frábært veiðihús með heitum potti
🐟 Kvóti: 2 laxar á stöng á vakt
🪱 Fluga og maðkur leyfð
Það var góð stemmning hjá Hjalta Harðarsyni og félögum í Gljúfuránni nýverið en þess má geta að Hjalti er maðurinn með laxinn! Takk kærlega fyrir að deila með okkur meðfylgjandi myndum.