Við kynnum með stolti ungmennadaga í Langá 18.-19. ágúst

Langárbyrgi veiðihús við Langá

Dreymir þig um að veiða í Langá á Mýrum?

Dagana 18.–19. ágúst gefst félagsmönnum  fæddum á árunum 2006–2009 einstakt tækifæri til að kynnast einni af fegurstu og þekktustu laxveiðiám landsins og njóta útiveru í góðum félagsskap.

Ferðin er gjaldfráls. Boðið verður upp á gistingu og rútuferðir fyrir þá sem þess óska og allar máltíðir eru innifaldar.  Þaulreyndir leiðsögumenn verða þátttakendum til halds og trausts við veiðarnar.

🧭 Fyrirkomulag

  • 24 pláss í boði – tveir veiðifélagar á stöng.
  • Veitt verður síðdegisvaktina 18. ágúst og morgunvaktina 19. ágúst.
  • Einn leiðsögumaður fyrir hverjar tvær stangir.
  • Gist í tveggja manna herbergjum.*
  • Allar máltíðir innifaldar.
  • Rúta frá skrifstofu SVFR (Suðurlandsbraut 54) fram og til baka.*
    *Gisting og rúta eru valfrjáls.

⚠️ Nauðsynlegur búnaður

  • Fluguveiðistöng, hjól, lína og taumefni (9 feta stöng og lína nr. 8 æskileg).
  • Flugur (t.d. rauð og svört Francis, Hulk, Green Butt, Sunray Shadow).
  • Vöðlur, jakki og hlý föt – mikilvægt er að klæða sig eftir veðri.

ℹ️ Athugið:

  • Skráning tryggir ekki sjálfkrafa pláss.
  • Ef umsóknir reynast fleiri en plássin sem í boði eru verður dregið úr umsóknum.
  • Skráðir félagar (f.2006-2009)* með greitt félagsgjald njóta forgangs.*
    *Ef þú ert aðeins yngri eða eldri, hafðu þá endilega samband.

📅 Skráningu lýkur á miðnætti 5. júlí – skráðu þig HÉR.

By Eva María Grétarsdóttir Fréttir