Skráning er hafin á ungmennadaga SVFR í Elliðaánnum 2026 sem fara að þessu sinni fram 5.– 6. júlí og 9.–10. ágúst.
Fyrirkomulagið verður með sama sniði og undanfarin og er veiðitíma er skipt í tvær vaktir: 08:00–13:00 og 15:00–20:00. Sextán pláss eru í boði á hverri vakt. Hægt er að sækja um dag til vara, en miðað er við eina vakt á hvert ungmenni.
Markmiðið er einfalt: að gefa sem flestum ungum félagsmönnum tækifæri til að upplifa töfra Elliðaánna og njóta útiverunnar í góðum félagsskap.
- Veiðin er ætluð félagsmönnum 18 ára og yngri sem geta veitt sjálfir.
- Félagsaðild er forsenda fyrir skráningu.
- Hægt er að ganga í félagið með því að smell hér og kostar félagsaðild fyrir ungmenni 5.200 kr.
- Þátttakendur þurfa að vera í fylgd með fullorðnum
- Reyndir veiðimenn sjá um leiðsögn.
ATH! Skráning tryggir ekki pláss. Það er von okkar að sem flestir umsækjendur komist að, ef aðsókn verður umfram sætaframboð verður dregið úr umsóknum.
Skráningu lýkur á miðnætti 15. júní.