Ungt veiðifólk í essinu sínu við Rauðavatn – aukanámskeið 23. maí!

Eftir nokkurt hlé var ákveðið að endurvekja flugukastnámskeið fyrir yngstu meðlimi félagsins í samstarfi við Veiðiskólann.

Skemmst er frá því að segja að viðtökurnar létu ekki á sér standa en helgina 9.–10. maí mættu hátt í fimmtíu börn og ungmenni á aldrinum 10–19 ára við Rauðavatn til að læra grunnatriði flugukasts.

Boðið var upp á sex byrjendanámskeið í aldursskiptum hópum og þótt væta og vindur hafi sett sinn svip á helgina kom það ekki að sök. Það góða við stangveiðina er nefnilega að hún er einstaklega vel til þess fallin að byggja upp seiglu og þol gagnvart alls kyns veðri og vindum.

Bjarki Már hjá Veiðiskólanum var alsæll með helgina og hversu mikill áhugi var meðal þátttakenda. Gleði og einbeiting skein úr hverju andliti og allir fóru heim með aukna færni og aukið sjálfstraust bak við stöngina. Þá höfðu margir á orði að gaman væri að sækja framhaldsnámskeið síðar og er það von okkar að slík námskeið verði að veruleika í ágúst.

Í millitíðinni ætlum við hins vegar að bjóða þeim sem ekki höfðu tök á að sækja síðustu námskeið upp á aukanámskeið laugardaginn 23. maí frá kl. 10:00–12:00.

Skráning fer fram hér: https://svfr.is/view/flugukastnamskeidums/

Að lokum viljum við þakka vinum okkar hjá Veiðiskólanum kærlega fyrir frábært samstarf — við hlökkum til að bjóða upp á fleiri spennandi viðburði með þeim á næstu mánuðum.

By Eva María Grétarsdóttir Félagsstarf Fréttir