Gljúfurá áfram hjá SVFR næstu árin

Maður að veiða í gljúfurá

SVFR og Veiðifélag Gljúfurár skrifuðu nýlega undir nýjan samning sem tryggir félagsmönnum áframhaldandi aðgang að Gljúfurá næstu árin. Með undirritun samningsins heldur áfram áratugalangt samstarf sem hefur skilað félagsmönnum SVFR fjölmörgum eftirminnilegum veiðidögum.

Gljúfurá hefur verið innan vébanda SVFR frá árinu 1982 og skipar sér þar með sess meðal þeirra áa sem margir félagsmenn þekkja vel og sækja reglulega heim. Áin hefur í gegnum tíðina byggt upp tryggan hóp aðdáenda sem kunna að meta fjölbreytta veiði, fallegt umhverfi og rólega stemningu við árbakkann.

Gljúfurá rennur um fallegt landslag og státar af fjölda fjölbreyttra og glæsilegra veiðistaða. Þar má finna bæði klassíska strauma og lygnari breiður sem hafa oft gefið góða veiði

Ragheiður Thorsteinsson, formaður SVFR og Magnús Fjeldsted, formaður Veiðifélags Gljúfurár við undirritun samningsins

Ráðist í vegabætur og stórbæta aðgengi að veiðistöðum

Veiðifélag Gljúfurár er að ráðast í vegabætur sem gera það að verkum að hægt verður að keyra meðfram Norðuá hjá Sólheimatungu og niður á neðsta svæðið, sem mun auðvelda aðgengi veiðimanna að þessum vinsælu veiðistöðum til muna.

Á síðasta ári var jafnframt farið í umfangsmiklar endurbætur á veiðihúsinu við Gljúfurá. Húsið var tekið allt í gegn og aðstaða bætt fyrir gesti, auk þess sem nýr heitur pottur var settur upp við árbakkann. Með þessum framkvæmdum hefur aðstaðan við ána verið færð í enn betra horf og ætti að gera dvöl veiðimanna enn ánægjulegri.

„Við erum afar ánægð með að hafa tryggt áframhaldandi samstarf um Gljúfurá. Áin hefur skipað sérstakan sess hjá mörgum félagsmönnum okkar í gegnum tíðina og það er ánægjulegt að sjá bæði uppbyggingu á svæðinu og aukið aðgengi sem mun nýtast veiðimönnum vel,“ segir Ragnheiður Thorsteinsson formaður SVFR.

Með nýjum samningi er ljóst að félagsmenn SVFR geta áfram hlakkað til veiði í einni af fallegri ám landsins þar sem náttúrufegurð, góð aðstaða og fjölbreytt veiði fara saman.

Veiðimaður með lax úr Gljúfurá
By SVFR ritstjórn Fréttir Gljúfurá