Vorveiðin á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal hófst um daginn og komu alls 25 urriðar á land, og var sá stærsti 67 cm. Mikið vatn var í ánni og því ekki hægt að veiða alla veiðistaði en þeir staðir sem voru inni voru heldur betur að gefa. Fiskurinn kemur vel undan vetri, er flottur í holdum og er einnig meira af minni fiski í ár heldur en í fyrra, sem gefur góð fyrirheit fyrir sumarið.
Það er nokkuð ljóst að það er spennandi tímar fram undan á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal!
Smelltu til að skoða laus veiðileyfi á Miðsvæðinu í Laxá í vefverslun SVFR.