SVFR og Veiðiskólinn kynna flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára

Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiskólinn kynna með stolti flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára ungmenni helgina 9.-10. maí við Rauðavatn.

Skráning hófst í síðustu viku og hefur farið vel af stað en þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 30 skráningar borist. Ætlunin var að bjóða upp á námskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna en í ljósi þess að við höfum eingöngu fengið skráningar á byrjendanámskeið verða öll sex námskeiðin ætluð byrjendum að þessu sinni. Ef einhverjir óska eftir að komast á námskeið fyrir lengra komna biðjum við þá að setja sig í samband við okkur í gegnum tölvupóst á svfr@svfr.is.

Námskeiðin eru opin öllum, óháð félagsaðild, en meðlimir SVFR njóta forgangs í skráningu. Við hvetjum öll áhugasöm ungmenni til að skrá sig en þetta er frábært tækifæri til að læra réttu handtökin, og bæta færni sína enn frekar, undir handleiðslu þaulreyndra kastkennara.

Skráning fer fram HÉR. Sem stendur er alveg að verða fullt á námskeiðin sem hefjast klukkan 10, báða morgna, en nóg pláss er í boði á öðrum tímasetningum.

  • Staðsetning: Rauðavatn.
  • Lengd námskeiðis: 2 klukkutímar.
  • Fjöldi þátttakenda: 12 pláss í boði á hverju námskeiði.
  • Námskeiðsgjald: 10.000 kr. Greitt á staðnum.

9. maí – laugardagur
10:00-12:00 / Byrjendur 10-14 ára (1 laust pláss)
12:30-14:30 / Byrjendur 10-14 ára
15:00-17:00 / Byrjendur 15-19 ára (7 laus pláss)

10. maí – sunnudagur
10:00-12:00 / Byrjendur 10-14 ára (1 laust pláss)
12:30-14:30 / Byrjendur 10-14 ára
15:00-17:00 / Byrjendur 15-19 ára (6 laus pláss)

By Eva María Grétarsdóttir Fréttir