Þann 19. mars sl. var haldið fjórða og síðasta opna hús Kvennanefndar SVFR.
Þar fóru Caddisbræðurnir Hrafn og Óli yfir það sem þarf að hafa í huga við veiði á urriða í straumvatni og sýndar myndir og myndbönd frá paradísinni Laxárdal. Um 20 konur mættu og kostir og gallar ólíkra veiðiaðferða voru rökræddir.
Þó að síðasta opna húsið sé búið er nóg á dagskrá hjá nefndinni í sumar. Þar ber fyrst að nefna kast- og veiðinámskeið í Brúará helgina 10-12. apríl. Er þetta í fyrsta sinn sem námskeiðið er haldið en viðtökurnar voru frábærar þar sem það fylltist strax af fjölbreyttum hópi kvenna sem sumar eru að taka sín fyrstu skref í fluguveiði á meðan aðrar vilja skerpa aðeins á tækninni.
Þá verður haldið í Laxárdalinn þann 22-25. júní. Enn eru lausar stangir í ferðina og hvetjum við áhugasamar konur að koma með okkur til þess að upplifa töfra Laxár, en Laxárdalurinn er eitt þekktasta urriðasvæði landsins og býður upp á einstakar aðstæður til veiða í stórbrotinni náttúru. Ferðin sameinar spennandi veiðitækifæri, faglega leiðsögn og hlýjan félagsskap veiðikvenna, hvort sem þú ert byrjandi eða reynslumikil.
Hægt er að skrá sig í ferðina eða nánari upplýsingar með því að senda okkur tölvupóst á kvennanefnd.svfr@gmail.com
Árlega ferðin í Langá á sínum stað dagana 30. ágúst til 1. september.
Vilt þú vera með í Kvennanefnd SVFR?
Við leitum að öflugri og skemmtilegri veiðikonu til að taka þátt í okkar frábæra starfi. Kvennanefnd SVFR vinnur að því að styrkja og valdefla konur í veiði með fræðslu, æfingum og félagsstarfi. Markmiðið er að skapa opið og styðjandi umhverfi þar sem veiðikonur geta eflt tengslanet sitt, deilt reynslu og þróast í veiði, óháð fyrri reynslu.
Helstu verkefni eru m.a.:
- Að skipuleggja viðburði yfir vetrartímann á meðan við bíðum óþreyjufullar eftir að veiðitímabilið hefjist.
- Skipuleggja veiðiferðir fyrir kvennfélaga í SVFR
- Sinna veiðileiðsögn í Kastað til bata, endurhæfingar verkefnis á vegum Krabbameinsfélagsins
Smelltu hér til að senda inn umsókn. Umsóknarfrestur er til 30.apríl n.k. og hvetjum við allar áhugasamar veiðikonur til að sækja um og taka þátt í okkar skemmtilega starfi!