Fimmtudaginn 26. mars verður Nördaveisla SVFR haldin á Brasa Restaurant í Turninum.
Yfirskrift kvöldsins er Öfgar á örlagastundu og að þessu sinni beinist kastljósið að þeim aðstæðum í laxveiði sem reyna hvað mest á bæði veiðimanninn og þolinmæðina. Hvað gerist þegar vatnið er allt of mikið, allt of lítið eða aðstæður einfaldlega óboðlegar? Hvenær ræður hæfileikinn för og hvenær hefur náttúran einfaldlega síðasta orðið?
Á dagskránni verður fjölbreytt og skemmtilegt efni. Ármann Kristjánsson kynnir Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal, Jón Þór Ólason stígur í pontu í Skólabekknum og ræðir veiði í krefjandi aðstæðum, og að venju verður spurningakeppni Makkersins á sínum stað. Þá tekur hið sívinsæla Kúltúrhorn við, þar sem Jón Þór, Ármann og Haffi ræða áleitnar og skemmtilegar spurningar um laxveiðina, veiðimenningu og það sem helst brennur á mönnum.
Kvöldinu lýkur svo með stórglæsilegu happdrætti með veglegum vinningum.
Sjáumst í Turninum
Nördaveisla SVFR er staðurinn þar sem fræðsla og félagsskapur mætast. Komdu, taktu þátt í umræðunni og vertu hluti af öflugu veiðisamfélagi.