Ungmennastarfið hefst 22. mars með fluguhnýtingum í Rimaskóla

Nú þegar vorið er á næsta leiti og stutt í að veiðitímabilið hefjist er kominn tími á að keyra ungmennastarfið í gang. Að vanda er fyrsti hittingurinn tileinkaður fluguhnýtingum og búast má við lífi og fjöri á sunnudaginn kemur, 22. mars, frá 13:00-15:00 í Rimaskóla þegar Mikael Marinó, formaður UMFS, býður í heimsókn í skólastofuna sína.

Við bjóðum öll áhugasöm ungmenni, 19 ára og yngri, hjartanlega velkomin óháð því hvort þau séu í félaginu eða ekki.

Látið orðið berast – hlökkum til að sjá ykkur! 😊

By Eva María Grétarsdóttir Fréttir