Skipan stjórnar liggur fyrir

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs á aðalfundi SVFR þann 26. febrúar rann út í gær.

Ragnheiður Thorsteinsson bauð sig ein fram til formennsku og er því sjálfkjörin til eins árs. Þrjú framboð bárust jafnframt um þrjú laus stjórnarsæti og því er ljóst hvernig stjórn verður skipuð að loknum aðalfundi. Hrannar Pétursson og Trausti Hafliðason buðu sig fram til endurkjörs, en auk þeirra tekur Þorgils Helgason sæti í stjórninni til tveggja ára. Halldór Jörgensson, stjórnarmaður til sex ára, dró boðað framboð til endurkjörs til baka og hættir í stjórn eftir frábært starf. Félagið færir honum innilegar þakkir fyrir gott starf og sérstaka áherslu hans á traustan rekstur félagsins.

Þorgils Helgason er félagsmönnum vel kunnugur, enda þekktur veiðimaður og fyrrverandi sölustjóri SVFR (2014 – 2016). Hann hefur um árabil verið virkur þátttakandi í starfi félagsins og er vel kunnugur málefnum þess. Við bjóðum Þorgils hjartanlega velkominn til starfa.
Fyrir sitja í stjórninni Brynja Gunnarsdóttir, Dögg Hjaltalín og Helga Guðmunds Jónsdóttir sem kjörnar voru til tveggja ára á aðalfundi 2025.

Með kveðju,

SVFR

By Ingimundur Bergsson Fréttir