Nú er tími stóru drekanna greinilega að renna upp, 96 cm fiskur veiddist í Blámýrarfljóti í Laugardalsá í gær.
Veiðikonan Guðrún Theódórsdóttir veiddi þennan gríðarlega flotta hæng á Sunray shadow, sjá mynd hér að neðan.
Það eru laus 3 holl í september í Laugardalsá, hvernig væri að skutlast vestur og setja í nokkra?