Svakalegar laxagöngur í Elliðaárnar

Víða hefur laxgengd verið undir væntingum veiðimanna, sem margir barma sér yfir fiskleysi. Í Elliðaánum er málum þó öðruvísi farið, því svakalegar göngur hafa verið í árnar undanfarna daga. Þegar þetta er skrifað hafa 1.080 laxar farið um teljarann frá miðnætti aðfararnótt laugardags, þar af 630 í gær og fyrradag! Samhliða hefur veiðin tekið við sér, ekki síst eftir rigningar undanfarinna daga. Í gær komu 17 laxar á land, en auk þess misstu veiðimenn tugi fiska sem voru svo sannarlega í tökustuði. Svipuð stemning var í sólinni sl. sunnudag, þegar ungir veiðimenn lönduðu 13 fiskum á fyrsta ungmennadegi SVFR þetta árið! Uppgangur Elliðaánna síðustu ár hefur verið með ólíkindum, því fyrir fáeinum árum var útlitið dökkt. Fiskgengd og veiði höfðu dregist saman og áhuginn á veiðileyfum minnkað. Sú ákvörðun SVFR að breyta veiðireglum í ánni, heimila eingöngu fluguveiði og setja á sleppiskyldu var umdeild á sínum tíma, en hefur reynst mikið gæfuspor.

By SVFR ritstjórn Fréttir