Laust holl í Gljúfurá 26.-28. júní

Vegna forfalla eigum við óvænt laust holl 26.-28. júní í Gljúfurá. Einhverjir myndu sjálfsagt segja að þetta væri nú í fyrra lagi en þegar tíðindi berast um frábæra veiði í Borgarfirði, þá bestu í Þverá frá árinu 2016 þar sem 27 laxar komu á land í opnunarhollinu, má vel leyfa sér dass af bjartsýni og það ætlum við að gera.

Í það minnsta eru góð teikn á lofti og ekki skemmir fyrir að veiðihúsið er alveg að vera klárt fyrir frumsýningu en unnið er hörðum höndum við að hnýta alla lausa enda áður en áin opnar þann 25. júní. Þegar öllu er á botninn hvolft þá stjórnum við ekki veiðinni, frekar en fyrri daginn, en við fullvissum ykkur um að nýstandsett veiðihúsið mun skarta sínu fegursta í sumar og taka vel á móti veiðimönnum.

Áhugasömum er bent á vefsöluna en fyrir utan ofangreint holl eigum við þrjú laus holl í september sem sjá má hér.

Nýja eldhúsið tekur sig vel út og mun vafalaust gleðja veiðimenn í sumar.

 

Það er orðið sérlega huggulegt um að litast í borðstofunni í veiðihúsinu í Gljúfurá.
By Eva María Grétarsdóttir Fréttir