Nú þegar júní er senn hálfnaður og allt fer að bresta á er vel við hæfi að við byrjum að hita upp fyrir komandi tímabil með fréttum af okkar svæðum.
Við hefjum leikinn fyrir norðan en urriðaveiðin í Mývatnssveit hefur verið mjög góð þrátt fyrir rysjótta tíð og þegar þetta er ritað eru 578 urriðar skráðir í bók í Mývó. Þá hefur Laxárdalurinn haldið fínum dampi, þrátt fyrir veðurfarið, en nú eru rétt um 200 fiskar komnir í bók og veðrið fer batnandi með hverjum deginum sem líður.
Á næstu tveimur vikum opna laxveiðiár félagsins hver á fætur annarri og óhætt að segja að tilhlökkunin sé farin að magnast enda lax sést víða og sterkar opnanir í Borgarfjarðaránum þetta misserið.
- 19. júní – Langá á Mýrum
- 20. júní – Elliðaár, Haukadalsá og Þverá í Haukadal
- 22. júní – Laugardalsá
- 24. júní – Sandá í Þistilfirði
- 25. júní – Gljúfurá og Leirvogsá
- 1. júlí – Flekkudalsá, Miðá í Dölum, Sandá í Þjórsárdal og Vatnsdalsá í Vatnsfirði
Eitt er víst að það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með komandi tímum og vonandi gefa sterkar opnanir víða tóninn fyrir gott veiðisumar. Undirritaður myndi ekki hata það ef veðurguðirnir gætu stillt þetta þannig í sumar að það rigni á nóttunni og þurrt yfir daginn… bið ekki um mikið en þó það.
Að endingu minnum við á vefsöluna en ennþá er hægt að tryggja sér flott leyfi fyrir sumarið!