Með að bjóða félagsmönnum SVFR betri kjör eykurðu sýnileika fyrirtækisins ásamt vörunnar og/eða þjónustunnar. Félagsmenn SVFR eru á 3ja þúsund, dreifðir um land allt og reglulega kynnum við þeim þau vildarkjör sem þeim býðst.

Þegar þú hefur fyllt út alla nauðsynlega reiti og smell á "skrá tilboð" færðu tölvupóst með þeim upplýsingum sem þú hefur skráð. Lestu tilboðskráninguna vel yfir og áframsendu póstinn á [email protected] til að staðfesta tilboðið og með upplýsingum um ef einhverju þarf að breyta/bæta við.

Við móttöku póstsins lögum við skráninguna ef eitthvað þarf að laga og virkjum tilboðið á síðunni https://svfr.is/felagsstarfid/vildarkort/ þar sem það er sýnilegt öllum félagsmönnum. Til að geta nýtt sér tilboðin þurfa félagsmenn að sækja sér vildarkort SVFR í smáforritinu Síminn Pay sem félagsmenn sækja sér á Google "Play Store". Það er síðan í sjálfsvaldi hvers tilboðsgjafa að óska eftir því að fá að sjá vildarkortið í símanum þegar félagsmaður ætlar að nýta sér tilboðið.

Hér að neðan er þátttökuform, vinsamlegast fylltu það út og ef þú lendir í vandræðum eða hefur spurningar máttu senda póst á [email protected] eða hringja í okkur á skrifstofuna í síma 568 6050.