Upplifðu töfra Sandár í Þistilfirði í september

Sandá er einstök þriggja stanga laxveiðiperla í stórbrotnu umhverfi á Norðausturlandi, þar sem stórlaxar og undirfagrir veiðistaðir setja svip sinn á veiðina. Meira en helmingur þeirra laxa sem veiðast í ánni er yfir 70 cm að lengd og því eiga veiðimenn ávallt von á því að setja í sannkallaðan Þistilfjarðarhöfðingja.

Laxagöngur hafa verið afar góðar í sumar og enn veiðist nýgenginn lax um alla á. September er auk þess tími „hundraðkallanna“, þegar stærstu laxarnir fara að láta meira fyrir sér fara. Í lok ágúst komu tveir glæsilegir laxar á land sem mældust 92 cm að lengd og því virðist aðeins tímaspursmál hvenær fyrsti 100 cm+ lax haustsins kemur á land.

Við eigum tvö spennandi holl laus á frábærum tíma í september fyrir veiðimenn sem vilja upplifa stórlaxa-haustveiði eins og hún gerist best – í stórbrotnu umhverfi Sandár í Þistilfirði.

Bættu við fjórðu stönginni án endurgjalds

Sandá er seld sem 3 stanga á en heimilt er að bæta við 4 stönginni, án endurgjalds. Til að geta nýtt fjórðu stöngina þarf einungis að stytta heildar veiðitímann um þrjár klukkustundir, úr 12 klst á dag í 9 klst. Þá er t.d. hægt að veiða frá kl. 9 - 13 og  frá kl. 15 - 20. Þetta er vitaskuld lítið mál í haustveiði þar sem morgnarnir eru gjarnan kaldari og sólin er farin að setjast fyrr á kvöldin.

Með þessu lækkar heildar verðið fyrir veiðimenn án þess að það bitni á gæðunum. Ef þú hefur áhuga á að kaupa holl í Sandá og nýta fjórðu stöngina má að senda póst á sales@svfr.is

13. - 16. september

Heildarverð á mann m.v. 2 á stöng:

  • Veitt á þrjár stangir: 212. 666 kr.
  • Veitt á fjórar stangir: 159.500 kr.

16. - 19. september

Heildarverð á mann m.v. 2 á stöng:

  • Veitt á þrjár stangir: 199. 167 kr.
  • Veitt á fjórar stangir: 149.375 kr.