Veiðimaðurinn er kominn út

Skemmtilegt veiðisumar framundan

Sumarblað Veiðimannsins er komið út og hefur aldrei verið stærra. Fjölbreytt efni er í blaðinu að vanda en framundan eru spennandi tímar í stangveiðinni þegar íslenska sumarið skartar sínu fegursta og margir eiga stefnumót við sína uppáhalds veiðistaði.

Veiðistaðalýsing á Úlfarsá-Korpu er í blaðinu en áin er nýr kostur innan raða SVFR. Um er að ræða fallega og gjöfula laxveiðiá innan borgarmarkanna þar sem kaupa má veiðileyfi á hagstæðu verði. Í ánni veiðist einnig sjóbirtingur þegar líða tekur á sumarið.

Í blaði nr. 204 segjum við m.a. frá fornfrægri silungaflugu sem er nú flestum gleymd, en flugan var svo skæð að hún var víða bönnuð. Veiðimaðurinn veltir fyrir sér mismunandi vindáttum og áhrifum þess á veiði hvaðan vindurinn blæs en veiðimenn afþakka vestanátt sumarið 2017!

Í blaðinu eru góð ráð fyrir þá sem vilja ná tökum á því að veiða silung með púpum og við skoðum sérhnýttar Laxárpúpur sem urriðinn fyrir norðan er sólginn í.

Viktor Örn matreiðslumeistari og Bocuse d’Or verðlaunahafi 2017 gefur lesendum uppskrift að ferskum villtum sumarlaxi en það jafnast fátt á við að elda frábæra villibráð að aflokinni veiðiferð. Viktor rekur veiðihús SVFR við Hítará, Haukadalsá og Langá og í blaðinu rýnum við í göngur síðustu tveggja sumra í Langá. Það kemur á óvart klukkan hvað laxinn gengur í ána.

Forsíðumyndina prýðir Elliðaárlax sem féll fyrir Sunray Shadow á opnunardegi ánna en fjallað er um mismundi útfærslur flugunnar í blaðinu ásamt ýmsu öðru efni.

Veiðimaðurinn er nú í dreifingu til áskrifenda og félagsmanna SVFR en fyrstu eintök blaðsins má nálgast í betri veiðivöruverslunum.

Útgefandi blaðsins er SVFR en það hefur komið út frá árinu 1940 og hefur frætt og kætt fjölmargar kynslóðir veiðimanna í meira en 75 ár. Ritstjóri er Hörður Vilberg en í ritnefnd eru þrautþjálfaðir blaðamenn og úrvalsljósmyndari: Trausti Hafliðason, Svavar Hávarðsson, Steingrímur Sævarr Ólafsson og Kjartan Þorbjörnsson (Golli).

Hönnuðir blaðsins eru Tryggvi Þór Hilmarsson og Þorleifur Kamban. Litróf sér um prentun og Bókvirkið um bókband. Blaðið er prentað á einstaklega vandaðan pappír sem endist því áratugum saman.

By admin Fréttir