Stangaveiðifélag Reykjavíkur er frábært samfélag veiðimanna af öllum stærðum og gerðum þar sem áherslan er að hafa gagn og gaman í góðum félagsskap.

Stangaveiði er einstaklega fjölskylduvæn íþrótt og við erum stolt af því að bjóða upp á öflugt og fræðandi félagsstarf fyrir unga jafnt sem aldna ásamt fjölbreyttum og spennandi valkostum í veiði víðsvegar um landið.

Ávinningurinn af því að gerast félagi er margvíslegur:

    • Félagar fá 20% afslátt af öllum veiðileyfum og Veiðikortinu
    • Þátttökuréttur í forúthlutun veiðileyfa Elliðaánum og öðrum ársvæðum SVFR
    • Þátttaka í skemmtilegu og uppbyggilegu félagsstarfi.
    • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum
    • Frí áskrift að Veiðimanninum sem kemur út tvisvar á ári, í júní og desember.

Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október og íslensk kennitala er skilyrði fyrir inngöngu.

ATH. þegar valin er maka aðild skal setja kennitölu, netfang og símanúmer félagsmanns í dálkinn "viðbótarupplýsingar".