Velkomin(n) í skemmtilegt félagsstarf!

Stangaveiðifélag Reykjavíkur er frábært samfélag veiðimanna af öllum stærðum og gerðum þar sem áherslan er að hafa gagn og gaman í góðum félagsskap.

Stangaveiði er einstaklega fjölskylduvæn íþrótt og við erum stolt af því að bjóða upp á öflugt og fræðandi félagsstarf fyrir unga jafnt sem aldna ásamt fjölbreyttum og spennandi valkostum í veiði víðsvegar um landið.

Ávinningurinn af því að gerast félagi er margvíslegur:

    • Þátttaka í skemmtilegu og uppbyggilegu félagsstarfi.
    • Félagar fá 20% afslátt af öllum veiðileyfum og Veiðikortinu.
    • Möguleiki á forgangsútlutun veiðileyfa í Elliðaánum og öðrum ársvæðum.
    • Frí áskrift að Veiðimanninum sem kemur út tvisvar á ári, í júní og desember.

Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október og íslensk kennitala er skilyrði fyrir inngöngu.

Félagsgjöld 2025
Almennt (20-66 ára)12.900.-Setja í körfu
Yngri en 20 ára4.400.-Setja í körfu
67 ára og eldri4.400.-Setja í körfu
Maka4.400.-Setja í körfu