janúar 15, 2025
19:00
Ölver
Fyrsta nördaveisla vetrarins verður þann 15. janúar á Ölver. Húsið opnar kl. 19:00, dagskrá hefst kl. 20:00 og stendur til kl. 22:15. Í boði verður spennandi dagskrá sem miðar að því að sameina fræðiþekkingu og skemmtun.
Kvöldið hefst á Skólabekknum. Í þetta sinn verður sannkallaður masterklass í vatnslestri þar sem Óli Caddis kennir okkur að finna silunga í straumvatni. Eftir það tekur við skemmtilegur spurningaleikur Makkersins með veglegum vinningi. Þá taka við panelumræður á léttu nótunum undir því skemmtilega heiti Kryddsilungurinn. Kvöldinu er lokað með happdrætti, sem þekkt er fyrir áhugaverða og eftirsótta vinninga.