Frá 71 ÞÚS.
Flekkudalsá
Flekkudalsá, eða Flekkan, er af mörgum talin ein af fallegustu ám landsins. Vinsæl þriggja stanga laxveiðiperla á sunnanverðri Fellströnd við Hvammsfjörð með góðu veiðihúsi. Veiðisvæðin samanstanda af veiði í Flekkudalsá, Tunguá og Kjarlaksstaðaá. Veiðistaðir eru fjölmargir og fjölbreyttir og hentar áin afar vel fyrir fluguveiði.
Í ánum þremur eru tæplega 50 merktir veiðistaðir.
Vesturland, Fellsströnd
Veiðitímabil: 01.07 - 15.09
Stangir: 3 - seldar saman
Agn: Fluga
Kvóti: 1 á dag
6 manns í sjálfsmennsku