Stangaveiðifélag Reykjavíkur er frábært samfélag veiðimanna af öllum stærðum og gerðum þar sem áherslan er að hafa gagn og gaman í góðum félagsskap.

Stangaveiði er einstaklega fjölskylduvæn íþrótt og við erum stolt af því að bjóða upp á öflugt og fræðandi félagsstarf fyrir unga jafnt sem aldna ásamt fjölbreyttum og spennandi valkostum í veiði víðsvegar um landið.

Ávinningurinn af því að gerast félagi er margvíslegur:

    • Félagar fá 20% afslátt af veiðileyfum og Veiðikortinu.
    • Þátttökuréttur í forúthlutun veiðileyfa í Elliðaánum og öðrum ársvæðum SVFR.
    • Þátttaka í skemmtilegu og uppbyggilegu félagsstarfi.
    • Afsláttarkjör hjá samstarfsaðilum.
    • Frí áskrift að Veiðimanninum sem kemur út tvisvar á ári, í júní og desember.

Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október og íslensk kennitala er skilyrði fyrir inngöngu.

ATH. þegar valin er makaaðild skal setja kennitölu, netfang og símanúmer félagsmanns í dálkinn "viðbótarupplýsingar".