Frá 96.000 kr.
Sandá í Þistilfirði
Sandá er laxveiðiperla í stórbrotnu umhverfi á Norð-Austurlandi sem færri hafa komist í en hafa viljað síðustu ár. Um er að ræða vatnsfalla með meðalrennsli um 12-20 rúmmetra og fallega veiðistaði sem dreifast ágætlega um svæðið.
Gisting
8 manns í sjálfsmennsku. Skylda að kaupa þrif.
Tímabil
Frá 24. júní til 22. september.
Veiðin
Lax, 4 stangir, eingöngu fluga með flugustöng. Öllum laxi skal sleppa.
Umsjón með veiðihúsi
Sigríður 892-0515.
Sandá
+354 568 6050
svfr@svfr.is
Veiðisvæðið - veiðin
Veiðisvæðið í Sandá er fjölbreytt og stórbrotið. Áin heldur vel vatni og afar sjaldgæft er að vatnsleysi hrjái veiðimenn. Þvert á móti skapar lágt vatn í ánni skemmtileg skilyrði með fleiri kjörnum gáruhnútsveiðistöðum. Áin er fiskgeng um 12 kílómetra upp að Sandárfossi. Sandá hentar einstaklega vel til fluguveiða og má segja að sumir staðir séu hannaðir fyrir veiðimenn af náttúrunnar hendi. Meðalveiði síðustu átta ára eru 302 laxar en sumarið 2023 veiddust 336 laxar í Sandá.
Sama gildir með Sandá og aðrar stærri ár, laxinn liggur oft nær heldur en mann grunar og er um að gera að byrja að kasta áður en vaðið er út. Fiskurinn er afar tökuglaður í yfirborði og eru gárutúbur mikið notaðar þarna, þó að áin sé köld þarf ekki að sökkva flugunni til að fá laxinn til að taka. Flugur frá stærð 8-16 reynast veiðimönnum afar vel.
Aðgengi er misgott á veiðistaði og er mikilvægt að veiðimenn gæti varúðar í gljúfrunum. Neðri svæðin eru mun aðgengilegri og er aðgengi oftast afar gott þar.
Sandá er algjör stórlaxaá en á hverju ári veiðast þar margir tveggja ára laxar. Áin er þekkt fyrir sinn stórvaxna og sterka laxastofn og hafa fjölmargir 100cm+ fiskar veiðst þar í gegnum árin.
Tillaga að svæðaskiptingu
1 - Sandárfoss - Hringur
2 - Þriggjalaxahylur efri - Fljótið
3 - Hæðarþúfuhylur - Bjarnadalshylur
4 - Strangur - Ósbreiða
Sandá
Sandá hentar samstilltum hópum og fjölskyldum frábærlega enda fylgir rúmgott og vel útbúið veiðihús með. Í húsinu er svefnpláss fyrir átta manns í fjórum tveggja manna svefnherbergjum. Baðherbergið er með sturtu og allur helsti eldhús- og borðbúnaður er til staðar ásamt sjónvarpi í stofu. Þá er góður sólpallur með gasgrilli við húsið sem og vöðlugeymsla.
Veiðihúsið er staðsett miðsvæðis og er stutt á veiðistaði frá því.
Vinsamlegast athugið að greiða þarf þrifagjald í húsi á brottfarardegi en innilfalið í þrifum eru almenn þrif og uppábúin rúm.
á staðnum / til athugunar
Svefnpláss fyrir 8 manns.
Sturta á baðherbergi.
Allur helsti eldhús- og borðbúnaður.
Sjónvarp.
Gasgrill.
Góður sólpallur.
Lyklabox með kóða.
Fólksbílafært að veiðihúsinu.
Veiðimenn ganga frá öllu rusli og skila húsinu í góðu ásigkomulagi, ekki er nauðsynlegt að taka rusl og dósir með við brottför.
Leiðsögn
Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.
Markvissari veiði
Fagleg ráðgjöf
Veiðireglur
Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.
Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í veiðibók.
Þrifagjald
Þrif á veiðihúsinu eru ekki innfalin í stangarverðinu og ber veiðimönnum að kaupa þá þjónustu. Innifalið eru almenn þrif og uppábúin rúm.
Veiðimenn sjá um að þrífa grill, klára uppvask, raða inn í skápa og skúffur ásamt því að sinna almennum frágangi.
Athugið! SVFR áskilur sér rétt til að rukka aukalega fyrir þrif ef frágangur á veiðihúsinu er ekki sem skyldi.
Sigríður Jóhannesdóttir
+354 892 0515
Greitt er fyrir þrif á brottfarardegi, annaðhvort með að skilja eftir greiðslu í veiðihúsinu eða með millifærslu. Nánari upplýsingar um greiðslu veitir umsjónarmaður þrifa.
Innifalið eru almenn þrif og uppábúin rúm.



