Frá 41.500 kr.
Reykjadalsá í Borgarfirði
Reykjadalsá er falleg tveggja stanga laxveiðiá í Borgarfirði sem rennur um Reykholtsdal og Hálsasveit framhjá sögufrægum stöðum á borð við Reykholt og Deildartunguhver.
Gisting
6 manns í sjálfsmennsku. Hægt er að kaupa uppábúið og þrif.
Tímabil
Frá 20. júní til 30. september.
Veiðin
Lax og silungur. Tvær stangir, fluga og maðkur. Kvóti er 2 laxar á dag á stöng.
Umsjón
568-6050 / svfr@svfr.is.
Veiðisvæðið
Reykjadalsá er falleg tveggja stanga laxveiðiá í Borgarfirði sem rennur um Reykholtsdal og Hálsasveit framhjá sögufrægum stöðum á borð við Reykholt og Deildartunguhver. Áin er 38 km löng, með góðu aðgengi og 32 merktum veiðistöðum.
Veiðin hefur verið stöðug undanfarin ár og veiddust 172 laxar og 51 urriði sumarið 2025. Veitt er á tvær stangir og leyfilegt agn er fluga eða maðkur. Hirða má tvo laxa á dag á stöng en öllum laxi umfram það skal sleppt.
Frá 20. júní til 1. ágúst eru seldar tvær stangir í einn dag, en frá 1. ágúst til 30. september eru seldar tvær stangir í tvo daga. ATH! Stangirnar seljast saman.
Veiðihús – staðsetning
Ef komið er frá Reykjavík er beygt til hægri af þjóðvegi 1 áður en farið er yfir Borgarfjarðarbrúna og inn á Borgarfjarðarbraut (veg nr. 50). Því næst er ekið sem leið liggur framhjá Kleppjárnsreykjum og að Reykholti. Að lokum er beygt til hægri að veiðistað nr. 16 – Reykholtsfljóti.
á staðnum / til athugunar
Svefnpláss fyrir sex manns.
Sturta á baðherbergi.
Allur helsti eldhús- og borðbúnaður.
Sjónvarp.
Gasgrill.
Heitur pottur.
Góður sólpallur.
Lyklabox.
Fólksbílafært er að veiðihúsinu.
Veiðimenn ganga frá öllu rusli og taka með við brottför.
Veiðimenn koma með sængurföt, handklæði og viskustykki.
Reykjadalsá
Við ána stendur glæsilegt 130 fm veiðihús á Bæjareyri, skammt frá Reykholti. Húsið rúmar sex manns í þremur tveggja manna herbergjum, öll með sér baðherbergi, og er búið öllum helstu þægindum. Á staðnum er heitur pottur, gasgrill og vöðlugeymsla.
Vinsamlegast athugið: Veiðimenn þurfa að hafa með sér rúmföt, handklæði og viskustykki. Hægt er að panta uppábúin rúm og lokaþrif fyrir 25.000 kr. við bókun veiðileyfis.
Veiðitími og veiðireglur
Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.
Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í veiðibók.
Leiðsögn
Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.
Markvissari veiði
Fagleg ráðgjöf