Á miðvikudaginn, 8. maí klukkan tólf á hádegi, opnum við fyrir skráningu á barna- og ungmennadaga 2024.

Um er að ræða tvo sunnudaga, annars vegar 7. júlí og hins vegar 11. ágúst, þar sem veitt er bæði fyrir og eftir hádegi og verða 16 pláss í boði á hverri vakt eða 64 í heildina.

Þeim foreldrum/forráðamönnum sem mæta er skylt að fylgja börnum sínum við veiðarnar, þó eingöngu til halds og trausts, en foreldrum er ekki leyfilegt að veiða. Reyndir leiðsögumenn verða á svæðinu og leiðbeina við veiðarnar en hafið í huga að ekki er um barnagæslu að ræða.

Vinsamlegast athugið að foreldrar þurfa að sækja um fyrir hönd barna sinna. Eins og áður sagði hefst skráning klukkan tólf á hádegi, 8. maí, og lýkur á hádegi viku síðar þann 15. maí.

Seinast komust færri að en vildu svo við hvetjum ykkur til að vera í startholunum rétt fyrir klukkan 12:00 á miðvikudaginn!

Strekktar línur,
Skrifstofan

Reglan fyrstur kemur, fyrstur fær gildir og skulu skráningar fara fram í gegnum skráningarform hér:

Búið er að loka fyrir umsóknir um barna- og unglingadaga í Elliðaánum 2024