Ungmennastarf SVFR

Ungmennastarf SVFR

Stangaveiðifélag Reykjavíkur er stolt af því að bjóða upp á öflugt félagsstarf fyrir ungmenni 19 ára og yngri. Félagsárið er frá 1. nóvember til 31. október og aðildin kostar 5.200 kr.

Hægt er að skrá sig í félagið hér með því að kaukpa aðild fyrir 19 ára og yngri.

Frá mars til september er boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði í þeim tilgangi að efla áhuga ungu kynslóðarinnar á stangveiðisportinu. Hápunktur sumarsins er án efa ungmennadagar Elliðaánna en vinsældir þeirra fara vaxandi ár hvert.

ATH. Vegna fjölda umsókna hefur verið lokað fyrir umsóknir í vorveiði í Korpu 25. apríl og 3. maí nk. Úthlutun verður tilkynnt fyrir hádegi föstudaginn 24. apríl.

Hér að neðan má sjá viðburðadagatal tímabilsins 2026.

Dags Viðburður Athugasemd
14. mars Fluguhnýtingar í Rimaskóla.
25. apríl Vorveiði í Korpu. Ein stöng - sex pláss í boði.
3. maí Vorveiði í Korpu. Ein stöng - sex pláss í boði.
9. maí Flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára. Verð 10.000 kr. Greitt á staðnum. 
10. maí Flugukastnámskeið fyrir 10-19 ára. Verð 10.000 kr. Greitt á staðnum. 
22. maí Vorveiði - Klettaskóli. Elliðaár.
29. maí Vorveiði - Hitt Húsið. Elliðaár.
5. júní Vorveiði - Ás styrktarfélag. Elliðaár.
12. júní Vorveiði - Einstök börn. Elliðaár.
5. júlí Ungmennadagar Elliðaánna. Dagur 1. Skráning hefst um miðjan maí.
6. júlí Ungmennadagar Elliðaánna. Dagur 2. Skráning hefst um miðjan maí.
9. ágúst Ungmennadagar Elliðaánna. Dagur 3. Skráning hefst um miðjan maí.
10. ágúst Ungmennadagar Elliðaánna. Dagur 4. Skráning hefst um miðjan maí.
19. ágúst Veiðidagur í Langá fyrir menntaskólaaldur. Auglýst nánar í maí.
Sept Haustveiði í Leirvogsá. Dagsetningar óljósar.