Kastnámskeið SVFR
Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður upp á kastnámskeið í samvinnu við Jóhann Sigurð Þorbjörnsson.
Jóhann, eða Jóa í Veiðiflugum, þarf vart að kynna fyrir íslenskum veiðimönnum og konum. Hann hefur kennt og leiðbeint í fluguköstum um árabil og býr yfir mikilli reynslu í kennslu fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Kastnámskeiðin eru frábært tækifæri fyrir þá sem vilja bæta kasttækni sína, ná lengra og nákvæmara kasti og öðlast meira sjálfstraust við árbakkann fyrir komandi veiðisumar
Alls sex námskeið verða í boði dagana 12, 13, og 14 maí, og svo aftur 19, 20 og 21 maí. Hvert námskeið er um 3 klukkustundir og hefst stundvíslega kl 19:00. Öll námskeiðin verða haldin á Klambratúni og er pláss er fyrir 5 þátttakendur á hverju námskeiði. Þátttakendur þurfa koma með eigin stöng (með hjóli og línu), og er mikilvægt að klæða sig eftir veðri.
Hægt er að velja námskeið hér fyrir neðan og ganga frá greiðslu.