Haustfögnuður SVFR

Staðsetning viðburðar:

Veislusalur Þróttar, Engjavegur 7, Reykjavík, 104

Event Description

Það verður öllu tjaldað til föstudagskvöldið 7. nóvember þegar blásið verður til haustfagnaðar félagsins. Herlegheitin fara fram í veislusal Þróttar og opnar húsið klukkan 19:00.

Dagskráin er ekki af verri endanum:

  • Sprelligosinn Ási Guðna stýrir veislustjórn og kemur öllum í gott skap.
  • Trúbadorinn Orri Sveinn mætir með gítarinn og heldur parýtinu gangandi.
  • Viðurkenningar fyrir stærstu laxa tímabilsins.
  • Tískusýning á vegum kvennanefndar.
  • Helstu veiðibúðirnar bjóða alls kyns fínerí í jólapakkann á góðum kjörum.

Léttar veitingar í boði og tilboð á barnum.

Allir velkomnir, félagsmenn jafnt sem aðrir veiðimenn.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Event Location

Veislusalur Þróttar, Engjavegur 7, Reykjavík, 104