FRÁ 5.000 KR.

Brúará í landi Sels

Brúará er þekkt sem ein fremsta silungsveiðiá landsins og eiga fjölmargir veiðimenn góðar minningar frá bökkum hennar. Nú hefur svæðið í landi Sels bæst í flóru SVFR og gefst félagsmönnum því tækifæri til að kynnast þessu skemmtilega veiðisvæði.

 

Grímsnes, landi Sels.
01.04 - 24.09
Stangir: 4
Agn: Fluga, maðkur og spúnn
Kvóti: sjá síðu
Fjölskylduvænt
Gott fyrir byrjendur
Aðgengilegt
Bóka núna

 

Gisting

Engin gisting en hægt er að hafa samband við Sel Guesthouse varðandi gistingu og mat.

 

Tímabil

1. apríl - 24. september

 

 

Veiðin

Bleikja og urriði, 4 stangir, fluga, spúnn og maðkur. Kvóti er fjórir silungar á dag undir 50cm. Leyfilegt er að hirða einn smálax á stöng á dag.

 

Hentar

Byrjendum sem lengra komnum.

Umsjón

Brúará í landi Sels


Veiðisvæðið


Brúará er önnur vatnsmesta bergvatnsá landsins og jafnframt ein besta bleikjuveiðiá Íslands.

Um árabil hafa verið seldar átta stangir fyrir landi Sels. Til að auka gæði veiðinnar og bæta upplifun veiðimanna hefur stöngunum verið fækkað úr átta í fjórar.

Veiðisvæðið er rúmlega fimm kílómetrar að lengd og liggur enginn vegur meðfram ánni. Veiði er einungis heimil frá vesturbakka árinnar og aðgengi er víðast hvar mjög gott. Efri veiðimörk svæðisins eru við Markalæk en neðri mörkin við læk sem rennur úr tjörn sunnan þjóðvegar. Veiðimenn geta lagt bifreiðum sínum við upplýsingaskiltið eða á bílastæðinu við gamla brúarstólpann við Drekkingarhyl .

Hafa ber í huga að Brúará er vatnsmikil og straumhörð á sem mikilvægt er að nálgast af varfærni og virðingu. Athygli er vakin á því að utanvegaakstur er með öllu óheimill.

Gagnlegar upplýsingar


Brúará í landi Sels
Veiði hefst: 1. apríl
Veiði lýkur: 24. september
Veiðifyrirkomulag: Heill dagur
Veiðitími: 07:00 - 22:00
Mæting, tími: Frjáls
Gisting: Engin gisting en hægt er að hafa samband við Sel Guesthouse varðandi gistingu og mat.
Vinsælar flugur: Hinir ýmsu kúluhausar, þurrflugur og straumflugur
Stangarverð – Brúará í landi Sels
Félagsmenn fá 20% afslátt frá stangarverði
4 Stangir 1. apríl til 24. september
1. apríl - 24. september 6.250 kr./stöng
ATHUGIÐ!
Stangarverð er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og breytingar.

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru valdir af kostgæfni og búa yfir áratugareynslu og sérþekkingu á veiðisvæðum félagsins. Með leiðsögumanni í för nýtist tíminn betur, veiðin verður markvissari og upplifun veiðimanna ríkari.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf

Veiðireglur


Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr Brúará, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

Silungur
Tímabil: 1. apríl - 24. september
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn.
Kvóti: Fjórir silungar á dag undir 50cm. Leyfilegt er að hirða einn smálax á stöng á dag.
Svæði: Frá Markalæk að læk við tjarnir fyrir neðan Brú.