Uppskeruhátíð SVFR 13. október!

Dagsetning:

október 13, 2023

Tími:

18:00

Staðsetning:

Rafveituheimilið

Uppskeruhátíð SVFR verður haldin föstudaginn 13. október í Rafveituheimilinu, Rafstöðvarvegi.

Farið verður yfir veiðitímabilið og ætlum við að eiga skemmtilega kvöldstund saman, fjörið byrjar kl 18:00 og stendur fram eftir kvöldi.

Dóri DNA verður með uppistand, Búllubíllinn á planinu með úrvals hamborgara , tilboð á barnum og Happahylurinn verður á sínum stað.

Skemmtilegasta veiðimyndin 2023 myndakeppni, við hvetjum félagsmenn að merkja myndir á Instagram með myllumerkinu #SVFRveidimyndin2023*  Vegleg verðlaun í boði.

Miðaverð kr. 2000.- fyrir félagsmenn og kr. 2.500 fyrir utanfélagsmenn.  Hamborgari, franskar og bjór/gos innifalinn í miðaverði.

Sjáumst hress á föstudaginn 13.okt!

 

Athugaðu að miðaverð með félagaafslætti kemur þegar þú ferð á greiðslusíðuna!  (Þarft að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum)

Aldurstakmark: 18 ára

 

 

Viðburður liðinn