Hver erum við?

Stangaveiðifélag Reykjavíkur er félagsskapur fólks með áhuga á veiði. Félagið byggir á góðu starfsfólki og félagsmönnum sem sinna hinum ýmsu verkefnum fyrir félagið.

Stangaveiðifélag Reykjavíkur var stofnað 17. maí árið 1939 og var tilgangur þess til að byrja með að halda utan um leigu á Elliðaánum. Síðan þá hefur félagið vaxið og dafnað í áranna rás og er nú leigutaki af fjölda veiðisvæða um allt land. Raunar er úrvalið svo mikið að enginn einn aðili annar á landinu býður upp á jafn fjölbreytta valkosti eins og SVFR.

Félagið býður þó ekki bara veiðileyfi til sölu því í félaginu er öflugt fræðslustarf og í gegnum barna- og unglingastarfið hafa ótal margir veiðimenn stigið sín fyrstu skref í veiðinni.

Hlutverk SVFR

  • Að útvega félagsmönnum veiðileyfi og taka í því skyni veiðivötn á leigu eða kaupa veiðisvæði og annast umboðssölu á veiðileyfum.
  • Að efla hróður stangaveiði með almennri fræðslu um íþróttina, með því að hvetja til hófsemi í veiði og stuðla að því að veiðimenn virði settar veiðireglur og umgangist náttúruna af virðingu og tillitssemi.
  • Að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölskylduíþróttar.
  • Að efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði, m.a. með kennslu í veiðileikni í ám og vötnum og hvers konar fræðslustarfi.
  • Að vinna að samstöðu stangaveiðimanna og standa vörð um rétt þeirra og hagsmuni.
  • Að stuðla að góðri samvinnu við veiðiréttareigendur og standa fyrir, ásamt þeim, umbótum á veiðisvæðum sem félagið hefur til umráða.

Veiðiumsjón og veiðivarsla á stór-höfuðborgarsvæðinu 2024

Hefur þú gaman af veiði, útiveru og nýtur þín í samskiptum við fólk? Stangaveiðifélag Reykjavíkur leitar að 1-2 jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingum til að taka að sér veiðiumsjón og veiðivörslu sumarið 2024. Reiknað er með að störf hefjist um 1. júlí (eða fyrr) og ljúki um 15. september en þó samkomulag um að hætta fyrr.

Starfið felur m.a. í sér;

  • Móttöku og samskipti við veiðmenn.
  • Eftirlit með veiðimönnum við veiði og mögulegum veiðiþjófnaði.
  • Umsjón og miðlun upplýsinga til veiðimanna.
  • Eftirfylgni á veiðiskráningu.
  • Úthlutun veiðisvæða til veiðimanna.

Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 17. maí nk.

Veiðiumsjón og veiðivarsla sumarið 2023

  • DD slash MM slash YYYY
  • Drop files here or
    Max. file size: 256 MB.