Frá 30 þús.

Sandá í Þjórsárdal

Sandá í Þjórsárdal er spennandi tveggja stanga valkostur fyrir veiðimenn sem vilja reyna við þann stóra en áin er síðsumarsá þar sem besti tíminn er öllu jöfnu eftir fyrstu haustrigningar. Seinni hluti ágúst og september eru því iðulega vinsælasti tíminn í ánni. Sandá hefur einnig að geyma urriða. Veitt frá upptökum til ósa Þjórsá. Veitt verður frá morgni til kvölds en ekkert veiðihús er við ána.

Þegar lítið er í ánni virðist fiskur halda sig neðarlega og við ósinn

Áin er þekkt fyrir stórlaxa, laxastofn Þjórsár er einn sá sterkasti á Íslandi og skilyrði fyrir lax í Sandá seinni part sumars eru yfirleitt mjög góð.

Stangaveiðifélag Reykjavíkur mun bjóða þennan spennandi valkost á mjög hagstæðu verði fyrir okkar félagsmenn.

Þjórsárdalur
01.07 - 30.09
Stangir: 2
Leyfilegt agn: Fluga
Öllum fiski sleppt
Fjölskylduvænt
Gott fyrir byrjendur
Aðgengilegt
Bóka núna

 

Gisting

Engin gisting

 

Tímabil

1. júlí - 30. september

 

 

Veiðin

Lax og silungur

 

Hentar

Byrjendum sem lengra komnum.

SANDÁ Current
Nánar
Umsjón

Sandá í þjórsárdal


Gagnlegar upplýsingar


Sandá í þjórsárdal
Veiði hefst: 1. júlí
Veiði lýkur: 30. september
Veiðifyrirkomulag: Heill dagur
Veiðitími: 07:00 -13:00 og 15:00 - 21:00
Mæting, tími: Frjáls
Gisting: Engin gisting
Vinsælar flugur: Frances, Sunray, Collie Dog, hitch túbur.
Stangarverð – Sandá í þjórsárdal
Félagsmenn fá 20% afslátt frá stangarverði
2 Stangir 1. júlí til 30. september
1. júlí - 30. september 60.000 kr./stöng
ATHUGIÐ!
Stangarverð er birt með fyrirvara um innsláttarvillur og breytingar.

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf

Veiðireglur


Almennar

Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr Brúará, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

Lax og silungur
Tímabil: 1. júlí - 30. september
Leyfilegt agn: Fluga
Kvóti: Öllu sleppt
Svæði: Sandá í Þjórsárdal