Frá 33.100 kr.

Leirvogsá

Leirvogsá er falleg tveggja stanga laxveiðiá í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Veiðisvæðið er rúmlega átta kílómetra langt og nær það frá ósum árinnar að Tröllafossi. Umhverfið er fallegt og fjölbreytt og í ánni eru 58 merktir veiðistaðir.

Mosfellssveit
Lax: 25.06 - 20.09
Stangir: 2
Agn: fluga og maðkur
Kvóti: 4 á stöng á vakt, sleppiskylda eftir 31. ágúst
Hús, engin gisting
Bóka núna

Gisting

Kaffi- og salernisaðstaða en engin gisting í boði.

Tímabil

Frá 25. júní til 20. september.

Veiðin

Lax, 2 stangir, fluga og maðkur. Kvóti er fjórir laxar á stöng á vakt. Í vorveiðinni og eftir 31. ágúst er eingöngu veitt á flugu og öllum fiski sleppt.

Veiðivarsla

821-3977

Umsjón og veiðivarsla

Leirvogsá

821 3977

svfrveidivarsla@gmail.com

Veiðisvæðið - veiðin

Það er hálf ótrúlegt hvað Leirvogsá leynir á sér, þegar maður er kominn í Birgishyl er lygilegt að ímynda sér að maður sé bara rétt fyrir utan höfuðborgina. Þessi netta tveggja stanga á er með eina hæstu meðalveiði per stöng á landinu en árið 2020 veiddust rúmlega 250 laxar og töluvert af sjóbirtingi sem er mögnuð veiði.

Fyrir neðan þjóðveg eru frægir pallar og pyttir sem henta einstaklega vel til maðkveiða, jafnframt eru það aflahæstu staðirnir í ánni. Eftir 31. ágúst er eingöngu veitt á flugu og öllum fiski skal sleppa.

Meðaltal veiða frá árinu 2014 – 2023 er 297 laxar á tvær stangir. Besta veiðin var árið 2015 og veiddust þá 706 laxar í ánni.

Í ánni eru 58 merktir veiðistaðir og þar má finna allskonar breiður, flúðir, pytti og strengi. Veiðistaðirnir eru því afar fjölbreyttir og aðgengi að þeim flestum er gott.

Þar sem Leirvogsá er nett á er mjög miklilvægt að nálgast veiðistaði rólega til að styggja ekki fiskinn. Gott er að byrja að nota litlar flugur og stækka svo hægt og rólega.

Tillaga að svæðaskiptingu

25. júní - 14. ágúst

Húsbreiða til og með Snoppu
Snoppa - Tunguborgareyrar

Á þessum tíma er best að skipta svæði á 1.5 klukkutíma fresti, frjálst svæði er fyrir ofan Húsbreiðu. Mælt er með að menn mæti við Gömlu Brú korter fyrir veiðitíma og ákveði skiptingu í sameiningu.

15. ágúst - 20. september

Tröllafoss - Svilaklöpp

Húsabreiða - Tunguborgareyrar

Ekkert frísvæði, þriggja klukkutíma skipting. Mælt er með að menn mæti upp í veiðihús korter fyrir veiðitíma og ákveði skiptingu í sameiningu.

Gagnlegar upplýsingar


LaxveiðiDagar: 25.06 - 20.09
Veiðifyrirkomulag: 1/2 dagur, fyrir og eftir hádegi
Frá 1. september eru seldir heilir dagar.
Morgunvakt: 07:00 - 13:00
Síðdegisvakt:16:00 - 22:00

Frá 15. ágúst:
15:00 - 21:00
Mæting, staður: 25.06 - 14.08
Gamla Brú

15.08 - 20.09
Veiðihús
Mæting, tími: korter fyrir vakt
Vinsælar flugur: Frances, Haugur, Green Butt, Sunray Shadow og Silver Sheep

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf

Veiðireglur


Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr Leirvogsá, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

Laxveiðin Tímabil: 25.06 - 20.09
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur. Eingöngu leyfilegt að veiða með flugu eftir 31. ágúst
Fjórir fiskar á stöng á vakt, öllu sleppt eftir 31. ágúst.