Frá 5.000 kr.
Kráká
Kráká er óbyggðaveiði eins og hún gerist best. Veiðisvæðið er ríflega 35 km langt og liggur að mestu leyti um öræfi í yfir 300 m hæð. Kráká er lindá og því frekar köld. Urriðinn í ánni er hægvaxta og fáliðaður en getur orðið nokkuð stórvaxinn. Einnig veiðist eitthvað af bleikju í ánni.
Upptök árinnar eru í Krákarbotnum og þangað liggur jeppaslóði, en víðast hvar er hann nokkuð langt frá ánni. Veiðiálag er ekki vandamál í Kráká; þar er veitt á fáar stangir, svæðið er gríðarlega langt og oft þarf að ganga talsverðan spöl frá bíl að ánni.
Upplifun veiðimanna þegar þeir koma að nýjum veiðistað er oft sú að þar hafi enginn veitt áður.
ATH. að daglegur veiðitími er að hámarki 12 klukkustundir á tímabilinu 8-22.
Í Krákárbotnum/Lækjum, sunnan Björnsness, er óheimilt að veiða eftir júlílok.

