október 15, 2026
20:00
Veislusalur þróttar
Haustið er komið og veiðisumarið að baki. Því er kominn tími til að hittast, rifja upp góðar veiðisögur og skála fyrir frábæru veiðisumri.
Haustfagnaðurinn fer fram í veislusal Þróttar í Laugardal fimmtudaginn 15. október. Húsið opnar kl. 20:00 og við hvetjum félagsmenn og allt veiðiáhugafólk til að mæta og eiga saman notalega og skemmtilega kvöldstund.
🎤 Jógvan Hansen – skemmtikraftur, tónlistarmaður, veiðimaður og vitringur sér um veislustjórn og hver veit nema hann grípi í gítarinn
🧠 Veiði-pub quiz með veglegum vinningum.
🏆 Viðurkenningar fyrir stærstu laxa tímabilsins.
🍽️ Léttar veitingar og gleðistund á barnum
Allir velkomnir – félagsmenn jafnt sem aðrir veiðimenn.
Mætum, skálum fyrir sumrinu og njótum kvöldsins saman!
Hlökkum til að sjá þig!
Með veiðikveðju,
SVFR